ÚTGÁFUTÓNLEIKAR.
Í tilefni af útgáfu sinnar fyrstu plötu heldur hljómsveitin Menn Árs...
More...
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR.
Í tilefni af útgáfu sinnar fyrstu plötu heldur hljómsveitin Menn Ársins glæsilega útgáfutónleika í Iðnó, laugardaginn 24. janúar. Fjöldi hljóðfæraleikara, strengjasveit, blásarar og slagverksleikarar munu leika með hljómsveitinni þetta kvöld.
Viðtökur við frumburði Manna Ársins hafa verið góðar. Lagið "12 Steps to the Liquor Store" sat í nokkrar vikur á vinsældarlista Rásar 2.
Menn Ársins áttu plötu vikunnar á Rás 2 og fengu lofsamlega dóma frá Andreu Jónsdóttur við það tækifæri, (hægt er að hlýða á dóminn hér: http://tinyurl.com/3p3qbl),
auk jákvæðrar gagnrýni í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og miðaverð er 1.500 krónur.
Forsala miða fer fram á miði.is:
http://midi.is/tonleikar/1/5410
Hljómsveitina Menn Ársins skipa:
Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Kjartan Guðnason
Sigurdór Guðmundsson
Sváfnir Sigurðarson
http://www.facebook.com/pages/Menn-Arsins/9428193486
http://www.myspace.com/mennarsins
http://www.last.fm/music/Menn+%C3%81rsins